Fræðslunet Suðurlands

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

Námskeið fyrir atvinnuleitendur á vorönn 2010

Undirbúningar vorannar stendur nú yfir. Fyrirhugað er að hafa nokkur námskeið á vonönn fyrir atvinnuleitendur. Fyrst ber að nefna Nám og þjálfun í almennum bóklegum greinum sem er 300 stunda námskeið ætlað þeim sem hafið hafa nám í framhaldsskóla en ekki lokið bóklegum áföngum eins og í íslensku, stærðfræði, ensku og dönsku. Námsleiðin er einnig fyrir þá sem hafa hug á að hefja framhaldsskólanám og vilja vera búnir að ljúka grunnáföngum í þessum fögum. Námsleiðin er viðurkennt vinnumarkaðsúrræði þannig að þátttakendur geta gert samning við Vinnumálastofnun vegna námsins. Námið má meta til allt að 24 einingum á framhaldsskólastigi. Hafi nemandi lokið einhverjum áföngum námsins getur hann fengið það metið. Skoða námskrá. Nánari upplýsingar eru í síma 4808155. 

Sterkari starfsmaður er 150 kennslustunda námsleið sem stendur aðallega saman af upplýsingatækni og samskiptum.  Námið má meta til allt að 12 einingum á framhaldsskólastigi. Skoða námskrá Námsleiðin er einnig viðurkennt vinnumarkaðsúrræði.

Skref til sjálfshjálpar í lestri og ritun er 60 stunda námskeið fyrir þá sem vilja styrkja sig í lestri og stafsetningu. Námið má meta til allt að 5 einingum í framhaldsskóla. Námsleiðin er einnig viðurkennt vinnumarkaðsúrræði. Hentar vel fyrir lesblinda og aðra þá sem eiga við lestrar- eða ritunarörðugleika að etja. Skoða námskrá

 
husiklippt-small.jpg

Námsvísir haust 2010

Námskeið í gangi

<<  September 2010  >>
 Má  Þr  Mi  Fi  Fö  La  Su 
    1  2  3  4  5
  6  7  8  9
   

© Fræðslunet Suðurlands | Tryggvagata 25 800 Selfoss | sími 4808155 | fax 4808156 | kennitala 641199 2579 | netfang: fraedslunet [hjá] fraedslunet.is | vefstjóri: steinunnosk [hjá] fraedslunet.is