Nú eftir helgi hefjast tvö úrræði fyrir unga atvinnuleitendur hjá Fræðslunetinu. Þessi úrræði eru liður í átakinu ,,Ungt fólk til athafna". Á mánudaginn hefst námskeiðið Færni í ferðaþjónustu I og einnig er áætlað að Skref til sjálfshjálpar í lestri og ritun hefjist í næstu viku. Færni í ferðaþjónustu I er 60 stunda langt nám og er hugsað fyrir þá sem hafa áhuga fyrir, eða hafa verið starfandi við ferðaþjónustu. Meta má þetta nám til allt að 5 eininga á framhaldsskólastigi. Skref til sjálfshjálpar er einnig 60 stunda langt og er ætlað þeim sem glíma við erfiðleika í lestri og ritun. Það má á sama hátt meta til eininga. Fleiri aðilar, s.s. FSu og Rauði krossinn munu einnig taka þátt í þessu átaki hér á Suðurlandi.
Skoða námskrár:









