
Gæðavottun er staðfesting á því að námskeið Fræðslunetsins standast evrópskar kröfur um gæði fræðsluaðila.
Um Fræðslunetið
- Details
- Miðvikudagur, 07. apríl, 2010
Fræðslunet Suðurlands er símenntunarmiðstöð sem sér um og skipuleggur námskeið fyrir fullorðið fólk. Námskeiðin eru af ýmsum toga bæði starfstengd- og tómstundanámskeið. Flest námskeiðanna eru auglýst á vefsíðu Fræðslunetsins og tvisvar á ári er gefinn út námsvísir þar sem auglýst eru námskeið fyrir allan almenning. Einnig skipuleggur Fræðslunetið námskeið eftir óskum fyrirtækja og stofnana. Fræðslunetið gerir föst verðtilboð í námskeið sem haldin eru eftir óskum aðila. Allar upplýsingar má fá í síma 5602030 eða senda tölvupóst: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Fræðslunetið er við Bankaveg 800 Selfossi og á Vallarbraut 16 860 Hvolsvelli.
