
Gæðavottun er staðfesting á því að námskeið Fræðslunetsins standast evrópskar kröfur um gæði fræðsluaðila.
Innritun á námskeið
- Details
- Mánudagur, 27. október, 2008
Innritun á námskeið fer fram í gegnum vef Fræðslunetsins (smella á: Skrá mig á þetta námskeið) eða á skrifstofu Fræðslunetsins. Hægt er að hringja í síma 560 2030 eða senda tölvupóst á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. .
Nauðsynlegt er að kynna sér reglur um innritun og námskeiðgjöld hér fyrir neðan.
Í umsókn þarf eftirfarandi að koma fram:
- námskeið
- nafn umsækjanda
- kennitala
- heimilisfang
- sími, heimilissími og/eða gsm númer
- netfang
- stéttarfélag (ef um það er að ræða)
Reglur um innritun og námskeiðsgjöld
Við innheimtu á námskeiðsgjaldi er meginreglan sú að þátttakandi fær sendan greiðsluseðil, sem hann getur greitt í hvaða banka sem er. Hætti fólk við þátttöku í námskeiði er það beðið að afskrá sig tímanlega.
Nokkrum dögum fyrir námskeið er haft samband við þátttakendur og þeir beðnir að staðfesta skráningu sína. Staðfesting er skuldbindandi, en með henni samþykkir þátttakandi að greiða fyrir námskeiðið og verður námskeiðsgjald viðkomandi námskeiðs innheimt, enda hefur Fræðslunetið þá skuldbundið sig bæði gagnvart kennara og öðrum þátttakendum. Námskeið stendur og fellur með þátttakendum þess.
