Fræðslunet Suðurlands

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

Smiðjan, þjónustu og nýsköpunarmiðstöð opnuð á Selfossi

Gestir á málþingiFöstudaginn 6. mars n.k. kl.16:00 mun verða opnuð þjónustu- og nýsköpunarsmiðja fyrir fólk í leit að nýjum tækifærum í Árborg, að Austurvegi 36, Selfossi þessi aðstaða hefur hlotið nafnið Smiðjan. Smiðjan er samstarfsverkefni Sveitarfélagsins Árborgar, Atvinnuþróunarfélags Suðurlands og Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands með stuðningi fjölmargra aðila s.s. stéttarfélaga, Fræðslunets Suðurlands, Vinnumálastofnunar, Rauða krossins og fleiri aðila.

Tilgangur og markmið með opnun og rekstri Smiðjunnar er m.a. að byggja upp starfsemi fyrir íbúa Sveitarfélagsins Árborgar sem leita nýrra leiða í atvinnu og eða námi. Smiðjan býður upp á aðstöðu fyrir þá er leita nýrra tækifæra á atvinnumarkaði. Í Smiðjunni verður boðið upp á aðstoð við námsmöguleika, námskeið, tómstundir og menningarstarfsemi ýmiskonar. Í Smiðjunni veður m.a. hægt að fá persónulega sérfræðiaðstoð, þjónustu náms- og starfsráðgjafa, fyrirlesara, hitta fulltrúa stéttarfélaganna auk ýmsa sérfræðinga. Þá verður hægt að fá leiðsögn um tómstundir og dægradvöl. Ráðgert er að vera með sérstaka viðburði í hverri viku og verða þeir kynntir sérstaklega í fjölmiðlum og á fyrirhugaðri heimasíðu Smiðjunnar sem auglýst verður sérstaklega.

Opnunartími Smiðjunnar verður fyrst um sinn  þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga frá kl:10:00 til 14:00. Hægt er að fá súpu í hádeginu á milli 12:00 til 13:00. gert er ráð fyrir að fólk leggi í kostnað vegna hráefnisins. Verkefnisstjóri Smiðjunnar er Sigmundur Stefánsson (Af vef Árborgar: http://arborg.is)

Sjá dagskrá Smiðjunnar

 
husiklippt-small.jpg

Námsvísir haust 2010

Námskeið í gangi

<<  September 2010  >>
 Má  Þr  Mi  Fi  Fö  La  Su 
    1  2  3  4  5
  6  7  8  9
   

© Fræðslunet Suðurlands | Tryggvagata 25 800 Selfoss | sími 4808155 | fax 4808156 | kennitala 641199 2579 | netfang: fraedslunet [hjá] fraedslunet.is | vefstjóri: steinunnosk [hjá] fraedslunet.is