Þrjár námsleiðir eru nú í undirbúningi hjá Fræðslunetinu á haustönn 2010:
Námsleiðirnar má meta til eininga á framhaldsskólastigi og geta atvinnuleitendur gert námssamning við Vinnumálastofnun, sótt þessi námskeið og haldið sínum bótum meðan á námi stendur. Leitið frekari upplýsinga hjá VMST á Suðurlandi.
- Grunnmenntaskólinn 300 stundir (10 vikur). Hefst 9. september kl. 10.30 - fullbókað - Möguleiki er að innritast í Grunnmenntaskóla sem kenndur er síðdegis og mun sá skóli standa fram á vor 2011.
- Nám og þjálfun í almennum bóklegum greinum 300 stundir (10 vikur). Áætlað er að hefjist 8. september kl. 8.10 (birt með fyrirvara um breytingar) Laus pláss
- Sterkari starfsmaður 150 stundir. Aðaláhersla lögð á tölvu- og upplýsingamennt. Innritun í gangi
Vinsamlegast hafið samband við Fræðslunetið til að afla frekari upplýsinga.
Námsvísa námsleiðanna má nálgast hér: http://frae.is/namsskrar/









