Undirbúningar vorannar stendur nú yfir. Fyrirhugað er að hafa nokkur námskeið á vonönn fyrir atvinnuleitendur. Fyrst ber að nefna Nám og þjálfun í almennum bóklegum greinum sem er 300 stunda námskeið ætlað þeim sem hafið hafa nám í framhaldsskóla en ekki lokið bóklegum áföngum eins og í íslensku, stærðfræði, ensku og dönsku. Námsleiðin er einnig fyrir þá sem hafa hug á að hefja framhaldsskólanám og vilja vera búnir að ljúka grunnáföngum í þessum fögum. Námsleiðin er viðurkennt vinnumarkaðsúrræði þannig að þátttakendur geta gert samning við Vinnumálastofnun vegna námsins. Námið má meta til allt að 24 einingum á framhaldsskólastigi. Hafi nemandi lokið einhverjum áföngum námsins getur hann fengið það metið. Skoða námskrá. Nánari upplýsingar eru í síma 4808155.
Sterkari starfsmaður er 150 kennslustunda námsleið sem stendur aðallega saman af upplýsingatækni og samskiptum. Námið má meta til allt að 12 einingum á framhaldsskólastigi. Skoða námskrá Námsleiðin er einnig viðurkennt vinnumarkaðsúrræði.
Skref til sjálfshjálpar í lestri og ritun er 60 stunda námskeið fyrir þá sem vilja styrkja sig í lestri og stafsetningu. Námið má meta til allt að 5 einingum í framhaldsskóla. Námsleiðin er einnig viðurkennt vinnumarkaðsúrræði. Hentar vel fyrir lesblinda og aðra þá sem eiga við lestrar- eða ritunarörðugleika að etja. Skoða námskrá







