Íslenska 4
Are you entitled to a 100% refund from your union? Click here for more information
Czy masz prawo do 100% zwrotu od swojego związku? Kliknij tutaj w celu uzyskania więcej informacji
Áttu rétt á 100% endurgreiðslu frá verkalýðsfélaginu þínu? Smelltu hér fyrir nánari upplýsingar
Námskeiðið miðast við þarfir þeirra sem hafa nokkuð góða undirstöðu í tungumálinu. Fjallað er um þætti sem tengjast daglegu lífi og þörfum fjölskyldu. Áhersla er lögð á að efla orðskilning nemenda tengdan ýmsum störfum, samskiptum á vinnustað, atvinnuumsóknum, atvinnuviðtölum og launaseðlum. Áfram er lögð áhersla á íslenskt samfélag og fjölmiðla með það fyrir augum að auka færni nemenda í tungumálinu og efla sjálfstraust þeirra og samfélagslega vitund. Fjallað um mannleg samskipti, virðingu og umgengni. Íslensk landafræði lítillega kynnt og nemendur segja frá reynslu sinni af ferðalögum um Ísland og önnur lönd. Fjölbreyttum kennsluaðferðum í tungumálakennslu beitt. Þjálfun í ritfærni. Leitast er við að gera verkefnin þannig úr garði að þau reyni á hæfni nemandans við raunverulegar aðstæður og þjálfi nemandann í að geta haldið uppi samræðum og gert sig sem best skiljanlega á íslensku.
Dæmi: sjónvarp, dagblöð, Internetið, útvarp, myndir, skóladagar, starfsdagar, viðeigandi klæðnaður, veikindi, viðtalstími, hegðun, heimanám, próf, skólabækur og áhöld, foreldrafundir, skólaskemmtanir, öryggisatriði, skattur, skattaskýrsla, orlof, kaup, atvinnuviðtal, ferilskrá, launaseðill, stéttarfélag, persónuafsláttur, ferðalög, landafræði.
- Kennari: Sigþrúður Harðardóttir
- Lengd: 60 stundir
- Dagar: Mánudagar og miðvikudagar
- Verð: 44.900 isl kr. Greitt er með korti, debit eða kredit eða með Netgíró. Athugið að fræðslusjóðir stéttarfélaga styrkja þátttakendur.
Reglur um innheimtu námskeiðsgjalda
Course Fee Policy
Regulamin opłat za kurs
Námið er styrkt af Mennta- og menningarmálaráðuneytinu