Icelandic 3 | Íslenska 3
Czy masz prawo do 100% zwrotu od swojego związku? Kliknij tutaj w celu uzyskania więcej informacji
Áttu rétt á 100% endurgreiðslu frá verkalýðsfélaginu þínu? Smelltu hér fyrir nánari upplýsingar
Áfanginn er ætlaður þeim sem hafa þó nokkra undirstöðu í íslensku og geta gert sig skiljanlega um fjölskylduhagi, líðan sína og starf. Haldið er áfram að fjalla um þætti sem tengjast daglegu lífi, atvinnu og atvinnuþátttöku til að auka orðaforða nemanda og þjálfa framburð. Einnig er þjálfaður orðaforði sem tengist leigu á húsnæði og húsnæðiskaupum. Lögð er áhersla á að kynna íslenskt samfélag fyrir nemendum með það fyrir augum að þeir verði meðvitaðir um þá siði og þær venjur sem hér tíðkast. Þeir þjálfast einnig í að kynna sitt heimaland, siði og venjur. Fjölbreyttum kennsluaðferðum í tungumálakennslu beitt. Leitast er við að gera verkefnin þannig úr garði að þau reyni á hæfni nemandans við raunverulegar aðstæður og þjálfi nemandann í að geta haldið uppi samræðum og gert sig sem best skiljanlega á íslensku. (sbr. Námskrá íslenska fyrir útlendinga - grunnnám, MNR 2008)
- Kennari: Jaroslaw Dudziak
- Lengd: 60 stundir
- Dagar: Mánudagar og miðvikudagar
- Verð: 44.900 isl kr.
- Pay by VISA Card, Credit or Debit or by Netgiro. It will not be charged until few days before the course begins. Please note that trade unions support the participants.
- Zaplac karta Visa, karta debetowa lub kredytowa lub online zyro (Netgíró). Oplata zostanie naliczona dopiero na kilka dni przed rozpoczeciem kursu.
- Greitt er með Vísa, debit eða kredit. Athugið að fræðslusjóðir stéttarfélaga styrkja þátttakendur.
Reglur um innheimtu námskeiðsgjalda
Course Fee Policy
Regulamin opłat za kurs
Námið er styrkt af Mennta- og menningarmálaráðuneytinu