­

Menntastoðir

From 05.01.2023 16:30 until 30.05.2023 20:00
 

Námskráin Menntastoðir lýsir námi á öðru þrepi hæfniramma um íslenska menntun. Námið er alls 1200 klukkustunda vinnuframlag nema og jafngildir 60 framhaldsskólaeiningum.
Námið er fyrir fólk með stutta formlega skólagöngu að baki og ætlað þeim sem stefna á nám við undirbúningsdeildir háskóla, ljúka framhaldsskóla eða vilja efla hæfni sína í almennum bóklegum greinum samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla. Markmið námsins er að styrkja jákvætt viðhorf til náms og auðvelda námsfólki að takast á við ný verkefni og mögulega áframhaldandi nám. Val námsþátta er einkum ætlað að styðja námsfólk í að efla eigin námstækni og samskipti, almennar bóklegar greinar, tölvu- og upplýsingatækni og lokaverkefni þar sem þjálfuð er sjálfstæð verkefnavinna með samþættingu námsþátta. Um er að ræða dreifnám með staðlotum, þannig að það hentar fólki á öllu Suðurlandi allt frá Höfn í Hornafirði til Þorlákshafnar.

Fyrir hvern? Námið er ætlað þeim sem ekki hafa lokið framhaldsskóla og hafa áhuga á frekara námi.

Til að sækja um námið þarf að greiða 20.000.- staðfestingargjald. Námið kostar í heild 181.000 samkvæmt verðskrá FA 2023 sem gildir frá 1. janúar 2023.

Þeir sem taka einstaka áfanga greiða hlutfallslega fyrir þá. 

Verðið er birt með fyrirvara um breytingar á gjaldkrá FA.  

Nánari upplýsingar veitir Eydís Katla Guðmundsdóttir í síma 560 2033 eða á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Miðað er við a.m.k. 80% viðveru og virka þátttöku til að ljúka náminu.

Námsþættir: 

Nafn námsþáttar  Kennslutími Skammstöfun   Klst.heild Klst. fræðslu  Eining  Þrep
Samskipti og sjálfstraust   vorönn 2023 F-SASJ2FS  40 20 2 2
Námstækni   F-NÁTÆ2NF  60  20  3 2
Íslenska 1   F-ÍSLE2RU 100  40  5 2
Íslenska 2   F-ÍSLE2RE 100  40  5 2
Erlend tungumál 1 (Enska)  vorönn 2023 F-ERTU2OH 100  40  5 2
Erlend tungumál 2 (Danska) vorönn 2023 F-ERTU2OL 100  40  5 2
Erlend tungumál 3 (Enska) vorönn 2023 F-ERTU2OF 100 40 5 2
Stærðfræði 1   F-STÆF2HS 100  40  5 2
Stærðfræði 2   F-STÆR2ER  100  40  5 2
Stærðfræði 3 (algebra og annars stigs jöfnur) vorönn 2023 F-STÆR2ME 100 40 5 2
Tölvu- og upplýsingatækni 0   F-TÖUP2RT  100  30  5 2
Lokaverkefni - heimildavinna vorönn 2023 F-LOKA2SV  100  20  5 3
Val    F-NÁVA2VN 100 40 5 2
Vinnuframlag námsmanns alls     1200  460  60  2

  

 Sjá námskrá

Ath að verð er birt með fyrirvara um breytingu á verðskrá Fræðslusjóðs. Verðið sem hér birtist er samkvæmt VERÐLISTA FRÆÐSLUSJÓÐS 2023 Gildir frá 1.01.2023

Verð: 181.000.- Hægt er að semja um greiðsludreifingu.

Athugið að starfsmenntasjóðir stéttarfélaganna styrkja námið. 

 

­
©2018 Fræðslunetið - símenntun á Suðurlandi | Tryggvagötu 13 800 Selfoss | sími: 560 2030 | fraedslunet@fraedslunet.is | kt. 641199-2579 | vefstjórn: steinunnosk@fraedslunet.is

Við notum vafrakökur á vefsíðu okkar, m.a. til að bæta notendaupplifun. Þú ákveður hvort þú vilt leyfa smákökur eða ekki. We use cookies on our website. Some of them are essential for the operation of the site, while others help us to improve this site and the user experience (tracking cookies). You can decide for yourself whether you want to allow cookies or not. Please note that if you reject them, you may not be able to use all the functionalities of the site.