Félagsliðagátt
Hægt er að innrita sig í námið á haustönn 2022.
Félagsliðabrúarnám er í boði við Fræðslunetið – símenntun á Suðurlandi. Námið er í heildina 151/161 eining á 2. og 3. þrepi. Hjá Fræðslunetinu er hægt að taka 81 einingu á 2. þrepi á fjórum önnum. Þátttakendur geta valið um sérhæfingu á sviði fötlunar- eða öldrunarlínu. Sérhæfingin er 5 einingar á hvoru sviði en nemendur geta tekið bæði sviðin ef þeir kjósa. Mögulegt er að taka þátt í raunfærnimati á félagsliðabraut og fá einhverja áfanga metna áður en námið hefst.
Fyrir hverja?
- Þá sem hafa náð 22 ára aldri.
- Þá sem hafa að minnsta kosti 3 ára starfsreynslu á sviði umönnunar barna, unglinga, fatlaðra, sjúkra og aldraðra.
- Þá sem hafa lokið 230 kennslustunda starfstengdum námskeiðum á vegum símenntunarmiðstöðva, stéttarfélaga, sveitarfélaga eða annarra aðila, s.s. ýmsum fagnámskeiðum, starfsnámi stuðningsfulltrúa, grunn- og framhaldsnámskeiði.
Verð:
Þátttakendur greiða kr. 20.000 í staðfestingargjald við innritun og 260.000 fyrir námið í símenntunarmiðstöð og er gjaldið innheimt í tvennu lagi. Starfsmenntasjóðir stéttarfélaga styrkja félagsmenn sína fyrir hluta námskeiðsgjalda í samræmi við reglur hvers félags.
Ath að verð er birt með fyrirvara um breytingu á verðskrá Fræðslusjóðs. Verðið sem hér birtist er samkvæmt VERÐLISTA FRÆÐSLUSJÓÐS 2023. Gildir frá 1. janúar 2023
Kennslufyrirkomulag:
Nám á félagsliðabrú er fjórar annir hjá Fræðslunetinu en síðan bætast við 70/75 einingar við framhaldsskóla. Í flestum áföngum er notast við speglaða kennslu. Nemendur hlusta á fyrirlestra heima en mæta í vinnustofur hjá Fræðslunetinu einu sinni í viku, síðdegis, alls fimm vikur. Verkefnavinna í vinnustofum fer fram í fjarkennslu í gegnum samskiptaforritið Teams. Námið hentar því vel með vinnu og þátttakendur geta stundað það óháð búsetu.
Námsgreinar:
Aðstoð og umönnun F-ASUM2UA
Enska fyrir félagsliða F-ENSK2FK
Félagsleg virkni F-FÉVI2FV
Fjölskyldan og félagsleg þjónusta F-FSFÞ2FJ
Fötlun F- FÖFR1FÞ
Fatlanir og samfélagið * F-FÖFR2MF
Gagnrýnin hugsun og siðfræði F-SIÐF2GH
Hegðun og atferlismótun (sálfr) F-SÁLF2HM
Íslenska fyrir félagsliða F-ÍSLE2TT
Kynja- og jafnréttisfræðsla F-KYNJ2KG
Lyfjafræði F-LYFJ2LF
Næringarfræði F-NÆRG2NF
Óhefðbundin samskipti F- ÓHSA2ÓS
Samvinna og samskipti F-SAMS1SS
Skyndihjálp F-SKYN2SP
Stærðfræði fyrir félagsliða F-STÆR2EÆ
Upplýsingatækni F-UPPT2UT
Öldrun F-ÖLFR1ÖL
Öldrun og samfélag * F-ÖLFR2ÖS
Sjá námskrá
Upplýsingar hjá Eydísi Kötlu:
Netfang: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Sími: 560 2030