­

Ólafur Ragnar Grímsson afhendir Gabriel Wetag'ula vísindastyrkinn

Forseti Íslands herra Ólafur Ragnar Grímsson afhendir Gabriel Wetang'ula styrkinn

Styrkur úr vísinda- og rannsóknarsjóði Fræðslunetsins var afhentur á hátíðarfundi föstudaginn 9. janúar. Það var doktorsneminn Gabriel N. Wetang'ula sem hlaut styrkinn að þessu sinni fyrir rannsóknir sínar á því  hvort rekja megi háan styrk kvikasilfurs í stórum urriða í Þingvallavatni til gufu sem kemur úr borholum við Nesjavelli. Verkefni hans heitir "Hefur loftborinnar mengun frá jarðvarmavirkjunum áhrif á lífríki ferskvatns? Does airborne pollutin from geothermal power plants affect freshwater biota?" Gabriel er doktorsnemi líf- og umhverisvísindadeildar Háskóla Íslands. Það var Forseti Íslands herra Ólafur Ragnar Grímsson sem afhenti styrkinn en það hefur hann gert í þau sjö skipti sem úthlutað hefur verið úr sjóðnum.

Segja má að rannsóknir Gabríels hafi mikið vísindalegt gildi m.a. með tilliti til hás verndargildis Þingvallavatns og lífríkis þess. Verkefnið er einnig mikilvægt fyrir jarðvarmavirkjanir hér á landi. Markmiðið er að kanna hvort og hvað mikið kvikasilfur gæti hugsanlega borist að vatninu með loftstraumum og að kanna rækilega kvikasilfursstyrk í lífverum á öllum þrepum svifkerfisins í vatninu.

Til þess að hljóta styrk úr vísinda- og rannsóknarsjóði Fræðslunets Suðurlands þurfa verkefni með ótvíræðum hætti að tengjast Suðurlandi og að vera á háskólastigi. Styrkupphæð er 750.000.-

Á hátíðarfundinum sem var vel sóttur komu fram nemendur frá Tónlistaskóla Árnesinga og fluttu þau tónlistaratriði með miklum myndarbrag og í lok fundarins var boðið uppá kaffi og meðlæti.

­
©2018 Fræðslunetið - símenntun á Suðurlandi | Tryggvagötu 13 800 Selfoss | sími: 560 2030 | fraedslunet@fraedslunet.is | kt. 641199-2579 | vefstjórn: steinunnosk@fraedslunet.is

Við notum vafrakökur á vefsíðu okkar, m.a. til að bæta notendaupplifun. Þú ákveður hvort þú vilt leyfa smákökur eða ekki. We use cookies on our website. Some of them are essential for the operation of the site, while others help us to improve this site and the user experience (tracking cookies). You can decide for yourself whether you want to allow cookies or not. Please note that if you reject them, you may not be able to use all the functionalities of the site.